|
Hótel Bjarg er
lítið og heimilislegt hótel sem byggt er yfir rennandi læk sem hefur þau áhrif
að allir sem hingað koma sofa vært. Stór pallur er út af veislusal sem snýr að
sjónum, þar er hægt að vera í sólbaði þegar veður leyfir en mikil veðursæld er
á Fáskrúðsfirði. Á pallinum er gasgrill.
Umhverfið
Fáskrúðsfjörður
er einstaklega fallegur og friðsæll umlukinn tignarlegur fjöllum og er kjörið
að koma hingað til að hvíla sig og endurnýja orkuna. Bæjarlífið einkennist af
rólegu og þægilegu fjölskylduumhverfi. Merktar gönguleiðir eru umhverfis bæinn. Heimasíða Austurbyggðar.
Fáskrúðsfjörður
er franskur bær
Herbergin
Herbergi eru átta
talsins og geta þau hýst 16 til 19 manns. Sjávarútsýni er úr herbergjunum. Rúm
voru endurnýjuð 2006 með amerískum latex dýnum frá King-koil og flest þar inni
er nýtt svo sem sængur, koddar, borð og stólar. Boðið er upp á tvíbreið rúm
þannig að þeim sem finnst gott að kúra saman þurfa ekki lengur að sofa í
tveimur rúmum. Einnig er búið að kaupa nýjar tvíbreiðar, hlýjar og góðar dún
sængur í flest rúmin.
Fjögur herbergjanna eru með baði og fjögur án baðs.
Skyldi einhver vera með ofnæmi er hægt að fá dýnur án latex og sængur án dúns.
Afþreying
Útivera er alltaf góð og hægt
verður að skreppa í siglingu á undurfögrum og kyrrsælum
firðinum eða renna fyrir fiski á trillu hótelsins. Ef veður er gott er hægt að
fara í gönguferðir um undurfagra náttúru Fáskrúðsfjarðar, hægt er að nálgast
kort með gönguleiðum í móttöku okkar.
Til afþreyingar inni er hægt að spila
borðtennis, billiard, fótboltaspil eða fara í singstar keppni í playstation
tölvunni eða einfaldlega fara í X-box 360 tölvuleiki. Þannig að allir ættu að
geta haft eitthvað að gera ef veðrið bíður ekki upp á útiveru. Hægt er að
komast í þráðlaust netsamband á hótelinu.
Taktu
hótelið á leigu
Hægt er að leigja
hótelið fyrir hópa og halda þar veislur eða samkomur. Kjörið er að leigja
salinn fyrir árshátíðir, ættarmót, fermingarveislur eða giftingar. Dansgólf er
í stóra salnum þar sem 140 manns geta skemmt sér saman. Hægt er að nota salinn
undir fyrirlestra en skjávarpi, gott hljóðkerfi og tjald er til staðar. Kjörið fyrir smærri fyrirtæki að koma og
þjappa starfsfólkinu saman með árshátíð eða hópefli. Salurinn okkar tekur allt
að 100 manns í kaffi og 60 í mat. Hægt er að fá árshátíðina tekna upp á CDdisk
(Video,digital myndir).
Barir
Tveir barir eru á
hótelinu. Litli barinn eða koníaksstofan er opinn til kl 03:00 um helgar, þar
er einnig hægt að horfa á sjónvarpið svo sem á íþróttaviðburði.
|